Fara í innihald

Köfnunarefni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Nitur)
   
Kolefni Köfnunarefni Súrefni
  Fosfór  
Efnatákn N
Sætistala 7
Efnaflokkur Málmleysingi
Eðlismassi 1,2506 kg/m³
Harka á ekki við
Atómmassi 14,0067 g/mól
Bræðslumark 63,14 K
Suðumark 77,35 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Gas
Lotukerfið

Köfnunarefni eða nitur er frumefni með efnatáknið N og er sjöunda frumefni lotukerfisins. Efnið er lit-, lyktar- og bragðlaus málmleysingi og er algengasta frumefnið í andrúmslofti jarðar, en 78% þess er köfnunarefni.[1] Það er fyrsta frumefnið í 15. flokki lotukerfisins sem nefnist því niturflokkur. Nitur er algengt í alheiminum og talið vera sjöunda algengasta frumefni Vetrarbrautarinnar og sólkerfisins. Við staðalaðstæður bindast tvær frumeindir köfnunarefnis og mynda N2 sem er lit- og lyktarlaust tvíatóma gas. Vegna þess hve köfnunarefni er rokgjarnt, er tiltölulega lítið af því í föstum hlutum jarðarinnar.

Fyrstur til að einangra köfnunarefni var skoski læknirinn Daniel Rutherford árið 1772, en um svipað leyti var það uppgötvað af Carl Wilhelm Scheele og Henry Cavendish. Franski efnafræðingurinn Jean-Antoine-Claude Chaptal stakk fyrstur upp á heitinu nitrogène árið 1790 þegar í ljós kom að það var til staðar í saltpéturssýru (nitursýru) og nítrati. Franski efnafræðingurinn Antoine Lavoisier stakk hins vegar upp á heitinu azote úr forngrísku ἀζωτικός azótikos „líflaus“ þegar í ljós kom að það er köfnunargas. Íslenska heitið er dregið af þessum eiginleika gegnum danska heitið kvælstof.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Greenwood, Norman N.; Earnshaw, Alan (1997). Chemistry of the Elements (2. útgáfa). Butterworth-Heinemann. doi:10.1016/C2009-0-30414-6. ISBN 978-0-08-037941-8.
  2. ↑ Jón K. F. Geirsson (1995). „Nafngiftir frumefnanna“. Náttúrufræðingurinn. 64 (4): 252.