Fara í innihald

Brittney Griner

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Brittney Griner
Griner með Phoenix Mercury árið 2019
Nr. 42 – Connecticut Sun
LeikstaðaMiðherji
DeildWNBA
Persónulegar upplýsingar
Fæðingardagur18. október 1990 (1990-10-18) (35 ára)
Houston, Texas, Bandaríkin
Hæð206 cm (6 ft 9 in)
Þyngd99 kg (218 lb)
Körfuboltaferill
HáskólaliðBaylor (2009–2013)
Landslið Bandaríkin
WNBA2013: 1. umferð, 1. valréttur
Valin af Phoenix Mercury
Ár í mfl.2013–nú
Liðsferill
2013–2024Phoenix Mercury
2013–2014Zhejiang Golden Bulls
2014–2015Beijing Great Wall
2015–2022UMMC Ekaterinburg
2025Atlanta Dream
2026–núConnecticut Sun
Tölfræði á Basketball Reference Breyta á Wikidata

Brittney Griner (fædd 18. október 1990) er bandarísk körfuknattleikskona sem er þekktust fyrir veru sína í WNBA þar sem hún varð meistari árið 2014. Hún vann gullverðlaun á ólympíuleikunum í Ríó de Janerio 2016, í Tókýó 2020 og í París 2020 með bandaríska landsliðinu. Hún vakti heimsathygli þegar hún var handtekin á Sheremetjevo-flugvelli í Moskvu fyrir vörslu fíkniefna.

Griner spilaði með Baylor háskóla þar sem hún stýrði liði skólans, Lady Bears, til sigurs í NCAA háskóladeildinni árið 2012.

Griner var valin fyrst í nýliðavali ársins 2013 af Phoenix Mercury. Síðan þá hefur hún verið lykilmaður hjá Mercury og er alltaf á meðal þeirra leikmanna sem taka flestu fráköstin og verja flest skot. Hún vann WNBA titilinn árið 2014 með liðinu og var valin varnarmaður ársins það ár og árið 2015.

Varðhald í Rússlandi

[breyta | breyta frumkóða]

Þann 17. febrúar 2022 var Brittney handtekin á Sheremetjevo-flugvelli í Moskvu. Hún reyndist vera með rafsígarettuhylki sem innhéldu örlítið magn af kannabis. Hún var í haldi í tæpa 10 mánuði en samskipti Rússlands og Bandaríkjanna voru mjög slæm á þessum tíma vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Þess vegna tóku samningaviðræður um fangaskipti langan tíma jafnvel þó Bandaríkjastjórn hafi nánast frá upphafi lýst sig tilbúna til skipta.[1]

Brittney var að lokum látin laus í skiptum fyrir Víktor Bút rússneskan vopnasala sem þekktur er undir nafninu kaupmaður dauðans. Hann hafði verið dæmdur í 25 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir ólögleg vopnaviðskipti.[2]

https://en.wikipedia.org/wiki/Brittney_Griner

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Ganguli, Tania; Abrams, Jonathan; Bubola, Emma (17. desember 2022). „What We Know About Brittney Griner's Release From Russia“. The New York Times (bandarísk enska). ISSN 0362-4331. Sótt 1. desember 2023.
  2. ↑ Luscombe, Richard; Roth, Andrew (9. desember 2022). „Brittney Griner freed from Russian prison in exchange for Viktor Bout“. The Guardian (bresk enska). ISSN 0261-3077. Sótt 1. desember 2023.