Fara í innihald

Chuck Norris

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Chuck Norris í upptökum á myndinni Delta Force (1986).

Carlos Ray „Chuck“ Norris (f. 10. mars 1940 í Ryan, Oklahoma – d. 19. mars 2026 í Kauaʻi, Havaí) var bandarískur leikari, bardagaíþróttamaður og höfundur. Norris gekk í bandaríska flugherinn sem táningur og lærði bardagalistir þegar hann var í þjónustu hersins í Suður-Kóreu. Hann hlaut síðar svarta beltið í karate og taekwondo og vann fjöldamargar keppnir í karate. Bardagakappinn Bruce Lee bauð Norris að leika skúrkinn í myndinni The Way of the Dragon (1972). Síðar lék Norris í mörgum hasarmyndum og urðu sjónvarpsþættirnirnir um rannsóknarlögreglumanninn Walker, Texas Ranger vinsælir á 10. áratugnum. Á síðari árum ferilsins urðu internetjarm vinsæl þar sem hugmyndir um styrk og áræðni Norris voru ýktar til hins ítrasta. [1]

Norris var kristinn íhaldsmaður og studdi ýmsar samsæriskenningar þ.m.t. að efast um að Barack Obama væri bandarískur ríkisborgari. [2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Chuck Norris, martial artist and Hollywood movie star, dies aged 86 BBC, sótt 21. mars 2026
  2. ↑ 'Texas Ranger' Chuck Norris warns of government plot to take over state The Guardian
  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.