Grænlenska
| Kalaallisut Kalaallisut | ||
|---|---|---|
| Málsvæði | Grænland (Danmörk) | |
| Heimshluti | Norður-Ameríka | |
| Fjöldi málhafa | um það bil 50 þúsund | |
| Sæti | Ekki meðal 100 efstu | |
| Ætt | Eskimó-aleútískt | |
| Skrifletur | Grænlenska stafrófið | |
| Opinber staða | ||
| Opinbert tungumál |
Grænland (Danmörk) | |
| Stýrt af | Oqaasileriffik | |
| Tungumálakóðar | ||
| ISO 639-1 | kl | |
| ISO 639-2 | kal | |
| ISO 639-3 | kal | |
| SIL | KAL | |
| ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. | ||
Grænlenska (grænlenska: kalaallisut) er inúítamál af eskimó-aleútísku málaættinni sem er töluð á Grænlandi. Hún er náskyld þeim málum sem Inúítar tala í Kanada og bandaríska fylkinu Alaska. Um það bil 50.000 manns tala grænlensku, en hluti þeirra er tvítyngdur og talar dönsku sem annað mál. Mælendur grænlensku eru þar með fleiri en málhafar allra annarra eskimó-aleútískra mála samanlagt.
Málvísindamenn og fornleifafræðingar eru nú á þeirri skoðun að forfeður núverandi Grænlendinga (burtséð frá evrópskum innflytjendum) hafi flust til landsins í fjórum lotum. Fólkið sem settist þar að var í öllum tilvikum Thule-Inúítar. Mállýskurnar í grænlensku endurspegla þessar lotur.
Stöðluð grænlenska sem nú er notuð í fjölmiðlum, skólum og stjórnsýslu hefur aðallega þróast úr miðvesturgrænlenska mállýskusvæðinu, í kringum núverandi höfuðborg, Nuuk. Grunnurinn að grænlenskri bókmenntahefð var lagður þar eftir 1860.
Þróun ritmáls
[breyta | breyta frumkóða]Þróun grænlensks ritmáls á sér stutta sögu enda höfðu Inúítar þar ekkert eigið ritmál, fremur en aðrir Inúítar fyrir komu Evrópumanna til Grænlands í annað sinn. Norski trúboðinn Hans Egede og meðhjálpari hans, Albert Top, gerðu fyrstu tilraunina til að skrifa grænlensku. Árið 1728 reyndu þeir að þýða sköpunarsögu Biblíunar. Sonur hans, Poul Egede, gaf út orðabók á grænlensku, dönsku og latínu.
Grunn að fyrstu kerfisbundnu stafsetningunni lagði hins vegar Herrnhútinn Samuel Kleinschmidt árið 1851. Kleinschmidt var málfræðingur og hann bjó til grænlenska stafsetningu sem varðveitti form stofna og viðskeyta á líkan hátt í öllum samsetningum. Málið varð þannig auðvelt í lestri, en stafsetningin var erfið því engin augljós tengsl voru á milli hljóðs og stafa. Framburður viðskeytanna er breytilegur eftir samhengi.
Stafsetning Kleinschmidts kom að góðum notum við þýðingu Biblíunnar, en til þess varð að þróa grænlenskan orðaforða á fleiri sviðum; til dæmis orð yfir félagsleg tengsl, náttúrufyrirbæri og siðfræðihugtök, sem höfðu ekki verið til áður í grænlensku.
Réttritun Kleinschmidts var notuð til ársins 1973 þegar tekin var upp ný hljóðfræðileg stafsetning. Hún auðveldaði ritun grænlensku mikið, þar sem ritmálið endurspeglar nú framburðinn að mestu.
Mállýskur
[breyta | breyta frumkóða]Í grænlensku eru þrjár meginmállýskur: avanersuaq (norðurgrænlenska), tunu (austurgrænlenska) og kitaa (vesturgrænlenska). Innan þessara meginsvæða eru allmargar undirmállýskur. Sérstaklega á það við um vesturgrænlensku. Þrátt fyrir að mállýskur ystu mállýskusvæðanna séu ekki gagnkvæmt skiljanlegar, er uppbygging tungumálsins á öllu svæðinu eins.
Nokkur einkenni
[breyta | breyta frumkóða]Grænlenska er mjög greinilega frábrugðin indóevrópskum málum. Í þeim málum eru yfirleitt einn eða fáir stofnar í hverju orði (til dæmis orðið „skólabók“ sem er samsett úr stofnunum skóli + bók). Í grænlensku eru oftast margir stofnar í einu orði. Það gerir orðin löng og flókin. Tungumál þar sem stofnar eru límdir saman á þennan hátt eru kölluð viðskeytamál.
Sérhvert orð getur tekið við næstum óendanlega mörgum myndum ummæla eða orðatiltækja. Viðskeytin geta stigbreyst, sýnt blæbrigði, tíma, staðfest eða hrakið o.s.frv. Orð hafa stofn, mörg viðskeyti og persónuendingu. Einnig er hægt að tengja endingar við stofna til að tjá ákveðið fall.
Fleirtala er mynduð með -t, þannig er „inuit“ fleirtala af „inuk“ sem merkir maður.
Stafrófið
[breyta | breyta frumkóða]Grænlenska stafrófið er tegund af latnesku stafrófi með 19 bókstafi:
| A | E | F | G | H | I | J | K | L | M | N | O | P | Q | R | S | T | U | V |
| a | e | f | g | h | i | j | k | l | m | n | o | p | q | r | s | t | u | v |
Að auki eru bókstafirnir b, c, d, h, x, y, z, w, æ, ø og å notaðir í tökuorðum og nöfnum af erlendum uppruna.
Grænlenskt ritmál er ólíkt ritmáli annarra inúítamála, því grænlenska fékk staðlað ritmál snemma, eða um miðja 19. öld. Sá staðall var í gildi fram til 1973 þegar núverandi stafsetning tók gildi. Í eldra staðlinum var meðal annars sérstakur bókstafur ĸ (Ux0138 í Unicode). Í nýja staðlinum er bókstafurinn Q notaður í stað ĸ.