Fara í innihald

Handverk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Handverkskona býr til tekönnu úr keramíki

Handverk (eða handavinna) kallast sú framleiðsla sem fer fram í höndunum eða með hjálp einfaldra verkfæra og getur bæði átt við um gjörninginn eða afurðina. Handverk var notað þar til fjöldaframleiðslubylgjan hófst með tilkomu stórra véla og sérhæfðra tækja. Í dag telst handverk gjarnan til listsköpunar, en einnig sem tómstundargaman og hafa margir atvinnu af því.

Þegar talað er um hefðbundna handavinnu á Íslandi, þá er verið að tala um hannyrðir, þar sem unnið er með garn og vefnað.[1]

Handverk og föndur

[breyta | breyta frumkóða]

Þegar handavinna er stunduð sem tómstundaiðja með börnum og óreyndum á tilteknum sviðum handverks, þá er oftast talað um föndur. Afurðir föndurs teljast yfirleitt sem skraut, gjafir eða leikföng sem hafa oftar en ekki lítið sem ekkert notagildi. Tilgangur föndurs er einfaldlega að búa eitthvað til, þar sem oft er fylgt leiðbeiningum eða skapa eitthvað fríhendis með þvi efni sem er við höndina.[2]

Algengt er að föndra skreytingar með börnum í kringum hátíðir og viðburði, t.d. jólaföndur eða páskaföndur.

Handverkssvið

[breyta | breyta frumkóða]

Í raun fellur nánast allt sem unnið er með höndunum undir handverk, en þau flokkast útfrá aðferðum og hráefnum sem unnið er með. Það getur verið misjafnt hvað telst sem hefðbundin handavinna eftir svæðum og löndum í heiminum.

Eftirfarandi listi sýnir dæmi um þekkt handverkssvið

Garn og vefnaður

[breyta | breyta frumkóða]

Textíl og leður

[breyta | breyta frumkóða]

Tré og viðarafurðir

[breyta | breyta frumkóða]

Málmur og leir

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Handavinna, orðanet og grannheiti“. ordanet.arnastofnun.is. Sótt 13. júní 2026.
  2. ↑ Katla Einarsdóttir (2022). „Hönnunargreining“.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.