Rósettusteinninn
Útlit
Rósettusteinninn er steinn þar sem sami texti er letraður á þremur tungumálum. Hann fannst árið 1799 í egypska þorpinu Rosetta og hann varð lykill að því að hægt var að ráða ritmál sem skráð er með híeróglýfum. Áletrunin á steininum er talin vera frá árinu 196 f.Kr. Áletrunin er skrifuð með híeróglýfum, demótísku og á forngrísku.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Vignir Már Lýðsson og Hringur Ásgeir Sigurðarson (18.6.2018). „Hvað stendur á Rósettusteininum?“. Vísindavefurinn.