1482
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1482 (MCDLXXXII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Þorleifur Björnsson kom heim frá Noregi með hirðstjóravöld og fyrirskipun frá norska ríkisráðinu um að skipti á eigum Guðmundar ríka Arasonar, sem gerð höfðu verið á Alþingi 1480, skyldu ógild.
- Þorleifur Björnsson lét reisa virki á Reykhólum.
- Andrés Guðmundsson kom að Reykhólum þegar Þorleifur var ekki heima og náði virkinu á sitt vald. Hann settist þar að með flokk manna, þar á meðal nokkrar erlendar skyttur, og er þar fyrst getið um byssur á Íslandi.
- Fædd
- Dáin
- Soffía Loftsdóttir, hefðarkona (f. 1418)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 19. janúar - Portúgalar komu til vestur-Afríku þar sem þeir reistu Elmina-kastala á Gullströndinni til að hafa stjórn á gullversluninni.
- 25. janúar - Fyrsta prentun á Torah á hebresku var gerð í Bologna.
- 28. febrúar - Kristnir íbúar á Íberíuskaga hófu að reka múslima frá Spáni þegar bærinn Alhama de Granada var tekinn í Andalúsíu.
- 1. ágúst - Ríkharður, hertoginn af Gloucester, réðst inn í Skotland og tók yfir Edinborg.
- 4. ágúst - Portúgalskir sæfarar undir stjórn Diogo Cão fundu mynni Kongófljóts.
- 23. desember - Arras-sáttmálinn: Loðvík 11. Frakkakonungur og Maximilians erkihertogi Habsborgara skiptu með sér Búrgúnd-svæðum Niðurlanda.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Tatarar frá Krímskaga réðust á Kiev.
- Leonardo da Vinci setti fram hugmynd að brynvörðu farartæki til að nota á vígvelli, eins konar skriðdreka.
- Fyrsta bók sem prentuð var á Norðurlöndum var prentuð í Óðinsvéum í Danmörku.
- Fædd
- Dáin
- 27. mars - María af Búrgund, kona Maxímilíans 1. keisara (f. 1457).
- 25. ágúst - Margrét af Anjou, Englandsdrottning, kona Hinriks 6. (f. 1429).
- Luca della Robbia, ítalskur myndhöggvari (f. 1400).