1515
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1515 (MDXV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Möðruvallamálum lauk með sátt á Alþingi, en það voru erfðadeilur sem staðið höfðu í tuttugu ár milli Þorvarðar Erlendssonar lögmanns og systkina hans annars vegar og Gríms Pálssonar sýslumanns hins vegar.
- Ögmundur Pálsson varð ábóti í Viðeyjarklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Oddur Gottskálksson, lögmaður (eða 1514; d. 1556).
- (Líklega) Eggert Hannesson, hirðstjóri og lögmaður (d. 1583).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Árni Snæbjarnarson, prestur.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 25. janúar - Frans 1. varð konungur Frakklands.
- 5. apríl - Emíratið Óman varð verndarsvæði Portúgals.
- 23. apríl - Portúgalir reyndu að ná undir sig borginni Marrakesh í Marokkó.
- 20. maí - Fyrsti nashyrningurinn kom til Evrópu, Frá Indlandi til Lissabon.
- 25. maí - Spænski landvinningamaðurinn Diego Velázquez de Cuéllar stofnaði Havana á Kúbu.
- 13.-14. september var stórorrustan við Marignano háð nálægt Mílanó. Frakkar sigruðu svissneskan her og hertóku borgina. Í kjölfarið lýsti Sviss yfir ævarandi hlutleysi.
- Spánverjar hernámu mestan hluta konungsríkisins Navarra. Þ.e. það varð hluti af Kastilíu.
- Sögurnar um Till Ugluspegil komu út í fyrsta sinn í Þýskalandi.
- Selím 1. Tyrkjasoldán réðist inn í Persíu.
- Portúgalir komu fyrstir Evrópubúa til Austur-Tímor.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 28. mars - Teresa frá Ávila, spænsk karmelnunna, dulvitringur og kirkjuumbótakona (d. 1582).
- 21. júlí - Filippo Neri, ítalskur dýrlingur og stofnandi Institutum Oratorii.
- 22. september - Anna af Cleves, fjórða kona Hinriks 8. (d. 1557).