Fara í innihald

Diana Taurasi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Diana Taurasi
Taurasi árið 2024
Persónulegar upplýsingar
Fæðingardagur11. júní 1982 (1982-06-11) (44 ára)
Glendale, Kalifornía, Bandaríkin
Hæð183 cm (6 ft 0 in)
Þyngd74 kg (163 lb)
Körfuboltaferill
HáskólaliðUConn (2000–2004)
Landslið Bandaríkin
WNBA2004: 1. umferð, 1. valréttur
Valin af Phoenix Mercury
Ár í mfl.2004–2024
LeikstaðaBakvörður
Liðsferill
2004–2024Phoenix Mercury
2005–2006Dynamo Moscow
2006–2010Spartak Moscow
2010–2011Fenerbahçe
2011–2012Galatasaray
2012–2017UMMC Ekaterinburg
Heildar tölfræði í WNBA
Stig10.646 (18,8)
Fráköst2.210 (3,9)
Stoðsendingar2.394 (4,2)
Tölfræði á Basketball Reference Breyta á Wikidata

Diana Lorena Taurasi (fædd 11. júní 1982) er argentínsk og bandarísk fyrrum körfuknattleikskona sem almennt er talin ein besta körfuboltakona allra tíma. Hún lék háskólabolta hjá UConn, þar sem hún leiddi liðið til þriggja NCAA meistaratitla á milli 2001 og 2004. Phoenix Mercury völdu hana fyrst allra í nýliðavalinu árið 2004 og hún lék með félaginu allan feril sinn í deildinni. Hún vann þrjá WNBA titla (2007, 2009, 2014) og var kjörin verðmætasti leikmaður deildarinnar árið 2009. Hún varð einnig fimm sinnum stigahæsti leikmaður deildarinnar og var 14 sinnum valin í fyrsta eða annað lið tímabilsins.[1]

Utan WNBA, lék Taurasi fjölda tímabila í Evrópu og vann EuroLeague kvenna sex sinnum. Hún varð sjö sinnum Rússlandsmeistari og þrívegis bikarmeistari. Hún lék einnig í Tyrklandi þar sem hún varð meistari árið 2011 og bikarmeistari ári seinna.[1]

Á tveimur áratugum sínum með bandaríska landsliðinu varð hún þrívegis heimsmeistari auk þess að vinna 6 Ólympíugull.[1]

Fjölskylda

[breyta | breyta frumkóða]

Faðir Taurasi, Mario, fæddist í Ítalíu var alinn upp í Argentínu. Hann var atvinnumaður í fótbolta á Ítalíu og lék í nokkur ár sem markvörður. Móðir Taurasi, Liliana, er argentínsk. Mario og Liliana fluttu frá Argentínu til Bandaríkjanna áður en Díana fæddist. Hún á eldri systur að nafni Jessika.[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 4 „Diana Taurasi | Biography, Stats, & Facts | Britannica“. www.britannica.com (enska). 2 maí 2025. Sótt 22 maí 2026.